Fór á quarashi tónleika í dag. Tónleikarnir byrjuðu á d.j. ...?? man ekki hvað hann hét og svo eftir að hann var búinn að spila í 47 mín sömu fucking loop-una hætti hann loksing og XXX rottvæler komu inn á. Ég verð að segja að ég er frekar ánægður að hafa fengið að sjá XXX og Quarashi hlið við hlið og séð munin á virkilega góðri rap tónlist og svona plö ! rapi.
Ég heirði ekki orð sem þessu blessuðu XXX drengir voru að segja... en nærri allt hjá Quarashi. En án gríns þá stóðu XXX sig ekkert vel kannski illa fyrir kallaðir en Erpur var allveg fínn og hélt góðu stuði í fólkinu
Drengirnir í Q áttu ekki bara salinn gjörsamlega heldur himinn og fucking jörð, þetta voru æðislegir tónleikar og ég var svo hípaður eftir þá að mig dauðlangaði rokk fyllerí á eftir Eeeennn ég er að fara að vinna morgun ..."má bjóða þér pizzu".
uhh.. segi ykkur frá spennandi degi af pizzu kynningum á morgun #suck#
.....gad I wana be playing music.....

What's *Your* Sex Sign?
posted by Jack at 10:23 AM
Tuesday, September 10, 2002
Sad mother fuckers
Ég roleplay-aði en þetta er bara sad !
posted by Jack at 4:01 PM
Jæja...
Bara að prófa nýtt template..ú ú úú.. og ég HTML snilli náði að "kostomæsa" link menu og bæta við e-mail menu..weee...vúbdí dú..eða eitthvað.
Ég er líka eftir að breyta litunum og svoleis og öruggleg eftir að víka texta flötinn... humm og koma teljaranum inn aftur ..ehh.. ég er eftri að breyta þessu fullt..
...og bæta við archives...
-Siggi Palli-
P.s Vonandi tók einhver eftir gagnrínenda brandaranum hérna fyrir neðan : )
posted by Jack at 6:58 AM
# NEWS FLASH #
Paster fights of alien invasion with glass og water and a baseballbat
Já ég var á Signs, bleh... ég var alltaf að bíða eftir ploti en það gerðist ekki. Í myndinni koma geimverur trilljón/skrilljón km í hátækni geimförum og fatta ekki að koma í pollagöllum uhhh... vatn virkar eins og sýra á þá. Myndinn er voða findinn en plottið ekki upp á marga fiska því miður. Vel gerð mynd og kvikmynda takan er skemmtileg, leikurinn góður. Allt í allt fín mynd fyrir utan hræðilegan söguþráð.
annað:
Við Kisa fundum æðislegan veitingar stað Kúri Thai og er rétt hjá Norðurstígnum. Maturinn er mjög góður og á hræbirlegu verði. Við erum búinn að finna okkur nýjan uppáhalds veitingarstað, fyrir utan Stick & Sushi : )
allt annað:
Í gær datt mér í hug að það ætti að taka blóð sýni úr öllum sem fara inn í skemtisvæði um verslunarmannahelgi og þannig gena merkja alla. Það ætti að hræða þessa ógeðslegu menn sem stunda það að nauðga littlum stelpum og gera lögregluni það einfallt mál að finna þessi ógeð. Ein nauðgun er einni nauðgun of mikið.!!!!
Sigg Palli.
- Mail 2 Zato-
posted by Jack at 6:08 AM
Monday, September 09, 2002
Það er bannaði að segja: "Negri", á íslandi
Hvaðan kemur þessi titill... ekki hugmynd.
Helgin var góð, djam á föstudag, með Braga, Kristjönu, Bjarna, Unni, Heiðu, Jóa (Philipus kallaður Pussi), Ingu Rún og KISU : ) Einar var á svæðinu í smá tíma en síðan var hann ekkert á svæðinu þó að skrokkurinn á honum héngi með okkur og á endanum hvarf hann líka. Við hittumst á dillon en fórum síðan á Celtic Cross, þarí kjallaranum var einhver trúbador sem Kisa og Heiða þekkja og hann var bara drullu góður. Hann var ekkert of sáttur við það að Kisa væri gift en var alger sjéntill maður með það allt saman. Hef sterkan grun um að hann sé skotinn í henni og hafi jafn vel verið elskhugi hennar einhvern tíma, þó að Kisa vildi ekki staðfesta það, en hvað veit ég : )
Ég fór að vinna á laugardaginn, voða gaman. Ég byrjaði daginn nefninlega með því að detta í sturtuni og togna í bakinu en því miður var ekki hægt að redda neinum til að fara fyrir mig, þannig að ég tók bara 4 verkjatöflur og eina bólgueyðandi og skolaði því niður með 1/2 bjór ...tra la la, skemmtilegt í vinnuni. Eftir vinnu fór Kisa með mig upp á nuddstofu og lagaði á mér bakið.
Um kvöldið fórum við svo dinner hjá littlu systur hennar Kisu. Það var ógislega góður matur eldaður grillaður humar og skötusels kebab. Húsið hennar littlu kisu er einhverstaðar lengst uppí Grafarvogi held ég, en húsið er rosalega flott og alll inni hjá þeim stíleserað.... ekki eins og hjá okkur bara svona hitt og þetta hér og þar hehehehe, en okkur er nokk sama. Samt gaman að koma inni heimili sem er svona vel saman sett. Eftir matinn setumst við niður og hlógum í svona 2 tíma umræðu efnið var vírdóar á höfn í hornafirði og "trust you me" það er greinilega nóg til af þeim því að við fengum endalausar sögur .. bærinn er greinilega pakk fullur af kleppurum.
Seinna fórum við til pabba í heimsókn og horfðum á endan á einhverri Eddy Murpy mynd og síðan á endursýningu á síðustu bardögum Mick Tysons það var bara gaman. Þegar við fórum heim hlóðu pabbi og Solla okkur matar gjöfum; 4 lundar, poki af gulrótum (heima ræktaðar) og nokkra hausa af heima ræktuðu káli.
Sunnudagur: Við fórum á samt öllum systinum hennar mömmu til að gefa henni "surprise" afmæli, hún á 50 ára afmæi í dag (mánudagur) en við ákvaðum að koma til hennar klukkan 10:30 og vekja hana með því að standa út í garði og syngja afmælissönginn og riðjast inn með fult af mat og gjöfum. Ég og Kisa keyptum armband handa henni og komum með fullt af ostum og ólífum í matinn. FUCK hvað góður ostur er dýr, við keyptum 4 bita í osta búðinni og það kostaði í kringum 4000 kr.
Eftir það fórum við heim að lúlla smá og Kisa fór eftir að við vöknuðum aftur á starfsmanna fund í vinnuni sinni og kom síða heim, náði í mig því að vinnan bauð öllum út að borða eftir fundinn. Svo fórum við á Stuttmyndadaga í Tjarnarbíó og hittum Jósa og Hjálmar. Þarna voru nokkrar góðar myndir og margar slæmar, og auðvitað sá ég myndina sem Gunni,Jósi,Stebbi (Logan), Ari, Ég og Kobbi gerðum...hún var allt í lagi hljóðið var í tómu fokki en annars allt í lagi eftir það fór ég heim við leigðum "The City of the Lost Children" og sofnuðum út frá henni.
Kisu dreymdi illa í nótt og ég var alltaf að vakna við það..skrýtið... og fyrir vikið urðu draumar mínir frekar zúrir.
Jæja best að fara í skólan.
Siggi Palli.
- Mail 2 Zato-
posted by Jack at 4:48 AM
Friday, September 06, 2002
EEkkkkk !!!
Já ég veit að þetta er horror look en ég er bara með það í smá tíma "no worries". Vildi breyta eftir ég sá að blogggagnrýnandi dauðans er með sama template.
Ekki hafa of miklar áhyggjur ég er með smá html kunnáttu.. ehh. hvort hún sé nóg til að gera síðuna mína eins og ég vill hafa hana er annað mál, en maður reynir bara eins og maður getur að gera eitthvað zúri look.
Og ef allt fer út um þúfur þá bara betla ég hjálp frá vinum mínum : ) Því að þau eru öllu cool..
... nema Kári hann er meistari alheimsins.
Siggi Palli
- Mail 2 Zato-
posted by Jack at 4:45 AM
Thursday, September 05, 2002
Jack off !
Það er gaur sem er með sama look á síðuni sinni og ég og er blogggagnrýnandi, og ef þið þekkið mig eitthvað þá vitið það að ég hata ekkert meira en gagnrýnendur. Þeir eru horka gikkir sem þora ekki að leggja neitt að mörkum í lífinu. Þeir gera ekkert, geta ekkert, eru ekkert, sitja og dissa fólk sem er að gera eitthvað af viti en eru sjálfir hálfvitar og aumingjar sem hafa ekki einu sinni bakbein til að reyna. Ef allir væru gagnrýnendur þá mundi enginn gera neitt, við mundum bara sitja í hring og gangrýna hvort annað fyrir að gera ekkert og við værum ennþá steinaldarmenn.
Ég ætla ekki að gera honum það til geðs að linka á hann, en það er linku á hann inn á Muzak ef þið eruð að springa úr forvitni.
Siggi Palli.
P.S. Hjálp !!! Ég vil fá hjálp frá þér til að gera nýtt look á síðuna, ég vill ekki líta út eins og einhver lúser sem er sjálfskipaður blogggagnrýnandi.
- Mail 2 Zato-
posted by Jack at 3:14 PM
Working out hurts
Ég byrjaði í gær að æfa aftur.... ÁÁÁÁÁ I ....
..og ég er líka byrjaður aftur í skólanum "sweet" hitti lærimeistara minn hann Guðmund Jónsson í dag og ég náði með hans hjálp að liðka mig upp eftir sumarið.
Ehhh.. ég var ekkert voða duglegur að æfa mig í sumar en þetta koma allt mjög fljót og örugglega, náði að taka "A N GOoo" æfingun hans nokkru sinnum fullkomlega og það gladi mig og hann mikið að ég væri ekki búinn að missa allt niður heldur bara smá pínk poggu riðgaður.
Í gær fór ég að æfa og hafði gott og gaman af, en æfði ekki magan (bumbuna) því að ég var að fara að singja daginn eftir ekki gott að vera með harðsperrur í þindinni þegar marr er að fara að singja.
Í dag fór ég líka að æfa, það var gott og ég tók aðeins meira á heldur en í gær. Þetta verður víst 5 dagar vikunar, from now on, eða allavegana þar til að bumban fer þá get ég farið að gera þetta 3 viku. Þekkjand öfga manninn mig þá er ég eftir að láta Arnold líta út eins og dverg eftir 4 til 5 mánuði.
Þannig er það nú að fyrir .. úff að verða 5 árum síðan fór ég og Beebz að pumpa og héldum við það út í c.a. 5 mánuði og ég er ekkert að djóka, ég blést út eins og ég veit ekki hvað, fór úr 72 kg í 86 kg á 3 mán (það var ekki fitu sniffsi að finn á mér) og ég man ekki hvað ég var kominn uppí þegar ég hætti. En það verður bara Zato steri eftir nokkra mánuði.....
...Hei kannski get ég selt fólki miða til að koma og skoða mig ...svona freak show ... "SEE THE INCREDIBLE MUSCLE MAN".
ég gæt rakað af mér allt hárið og fengið mér yfirvaraskegg sem ég vaxaði í endan til að láta það standa í svona krullu, farið í hlébarða skins föt og lift lóðum sem stendur á "1000".
..err... ok me go bey bey now
Siggi Palli
- Fail me... no mail me-
posted by Jack at 2:51 PM
Tuesday, September 03, 2002
Nýr linkur
Heiða greiða er kominn á netið og er núna linkuð hjá mér !
Weeeee....!!!
Allir á netið.
Kisa coming soon : )
Siggi Palli
- Mail Me-
posted by Jack at 8:40 AM
timien staba stova
ramniak.
nuva timien staba stova
ramniak
posted by Jack at 5:46 AM
Gömul saga
Trúðurinn
Til að bjarga sér þurfti hann að vinna fyrir sér sem trúður. Þetta var
fyrsti skiptið sem hann reyndi fyrir sér trúða bransan.
Hann var staddur í kjallara bar búllu var ekki alveg viss hvað hann var að
gera þarna. Hann kom inn með látum og öllu til heyrandi
því að vera trúður. Fólkið fór strax að hlæja, flestir þarna innni voru
svartir, ein múlena hálf svört hálf hvít. "Fallegasta mannsbarn
sem til er." Hugsaði hann með sér. Pabbi hennar var þarna inni, hann var
hvítur og líklega svona 90 ára gamall, hann þekkti
kallinn, hann hafði einu sinni verið kraftajötun bæjarins, en núna saman
skroppið lík sem labbaði um af gömlum vana, hári og
skegg sítt og gyllt af tóbaks notkun. Þegar mennirnir á barnum sá hvernig
trúðurinn horfði á konuna, hlógu þeir enn þá meira.
Þrír menn, hálf bræður hennar, svartir, gengu upp að honum, hálf veltandi
úr hlátri sagði einn þeirra, sá viðkunnuglegasti:
Bróðir: Villtu hana ?
Rétt náði að stynja orðunum á milli hláturs ekkana.
Trúður: Ég þekki hana ekkert en..... já
Bróðir: Þú ert alveg..guð ég get ekki andað hahahaha........
Eftir að hafa jafnað sig af hlátrinum.
Bróðir: Þú veist þú þarft bara vera eins og kallinn, þú þarft að verða eins og
hann var,,
Trúður: Þá geri ég það !
Sagði trúðurinn ákveðinn.
Bróðir: Word brother.!!!
Trúður: Word !
Bræðurnir þrír ætluða að rifna úr hlátir, einn þeirra datt af stólnum sínum
og hlóg enn þá meira fyrir vikið.
B: WORD.. A hahahahahah.... Ég er að deyja !!! ... hahahahahahah.
Trúðurinn heyrði þetta ekki einu sinni og tók ekki eftir því að allir inni
á barnum höfðu heyrt það sem fór þeirra á milli. Þar á meðal
kallinn og hún. En honum var sama, það eina sem hann sá var að hún var að
horfa á hann og hún brosti.
Hann æfði sig í eins og..... nei, enginn hefur æft sig svona, hvorki fyrr né
síðar hann varð naut sterkur á nokkrum vikum. Hann gat brotið
múrsteina með því einu að grípa utan um þá og kreista þá, hann gat brotið
brunahana með því einu að sparka hressilega í hann og
hann gat gamla trikkið sem kallinn hafði verið frægur fyrir.
Það var að standa fyrir framan borðplötu, grípa í sitthvora hliðina, lyfta sér
þannig að líkaminn var í 90 gráðu vinkil við hendurnar og svo lyfta sér úr
þeirri stöðu þangað til að hann stóð á höndum á borðinu.
Hann var viss um að kallinn sæi hann gera þetta mundi falla í nostalgíu og
fara tala um gömlu góðu dagana, síðast en ekki síst
kynna sig fyrir dóttur sinni. Sterki trúðurinn gekk að húsi þar sem að hann
hélt að þau ættu heima, en húsið var númer 6, ekki 6a. Hann
gekk inn í garðinn.Þar var bílskúr sem var greinilega búið að breyta í
íbýli, alls ekki óhreint eða illa hirt, bara fátæklegt, númer 6a. Hurðin
var opnin og kallinn stóð í henni.
Karllinn: Farðu !
Sterki Trúðurinn: Ég er orðinn eins og þú varst.
K: Mér er sama. Farðu !
ST: En þeir sögðu, ef ég væri eins og þú mæti ég...sjá dóttur þína.
K: Trúir þá öllu sem allir segja ?
ST: Uh.... nei.
Geitungur flaug um í kringum sterka trúðinn og fór óþægilega nálægt
andlitinum hans, hann sló til hans og reyndi að fá hann í burtu.
K: Mér sýnist það nú.
ST: Ég get gert gamla trikkið þitt, þetta með borðið.
K: Gott hjá þér. Farðu áður en geitungurinn stingur þig.
Geitungurinn faug upp í aðra nösina á sterka trúðinum. Hann greip um nefið
og blés af lífs og sálar kröftum, geitungurinn þaut út
úr nefinu á honum ásamt smá slummu af hori og lenti á jörðinn, sprikklandi,
deyjandi. Kallinn var kominn upp að sterka trúðinum, reiður.
K: Stakk hann þig ?!?
ST: Nei.
K: Þú ert búinn að vera nógu heppin í dag. Farðu !!!
ST: Já .en.....
K: FARÐU !!!!!
Kallinn skallf þegar hann öskraði, en varð ekki rauður í framan eins og
fólk verður þegar það öskrar svona hátt, líklega blóð lítill.
Stelpan stóð í hurðinni, hún var með sama bros og hún var með á barnum. Hún gekk upp að kallinum og byrjar að leiða hann inn, leit til baka á sterka trúðinn.
K: Fíflið þitt ég sagði þér að fara.
Hún gekk með gammla kallinnn inn og lokaði hurðinni, hann heyrði í honum
vera að snökta þegar að hurðin lokaðist. Sterki trúðurinn stóð eftir gáttaður.
Hann var gamall með með árunum eins og allir verða, giftist svartir konu
sem átti þrjá drengi fyrir. Hann eignaðist eittbarn með henni áður en hún dó, stelpu, fallegasta mannsbarn sem til hefur verið, og varð frægur fyrir að geta brotið múrsetina með því einu að geta gripið um þá og kreist.
Siggi Palli
posted by Jack at 4:44 AM